Nýjast á Local Suðurnes

“Eigum að biðja íbúa Reykjanesbæjar velvirðingar á getuleysi okkar þingmannanna”

Ásmundur Friðriksson þingmaður Suðurkjördæmis sagði í ræðu á þingi í dag að þingmenn ættu að biðja íbúa Reykjanesbæjar afsökunar á fálæti og getuleysi þingmannanna varðandi skuldavandamál sveitarfélagsins. Ræðan var haldin áður en kröfuhafar báðu Reykjanesbæ um að fresta ákvörðun um að senda inn beiðni til innanríkisráðuneytis varðandi skipun fjárhaldsstjórnar yfir sveitarfélaginu.

Þá sagði Ásmundur í ræðu sinni að tvær ríkisstjórnir hafi sett um 7 milljarða króna í tvö verkefni, á Húsavík og í Vestmannaeyjum, en að ekkert hafi gerst í málefnum Helguvíkur þrátt fyrir loforð.

Ásmundur sagði á Facebook síðu sinni að innihald ræðunnar stæði, þrátt fyrir að ákeðið hafi verið að fresta beiðni um skipun fjárhaldsstjórnar.

Hér fyrir neðan er ræða Ásmundar í heild sinni.

Virðulegi forseti. Þessa dags gæti orðið minnst sem svarts dags í sögu Reykjanesbæjar. Væntanlega munu menn á bæjarstjórnarfundi kl. 17 í dag hengja upp hvítt handklæði og óska eftir því að eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga yfirtaki rekstur sveitarfélagsins.

Þetta gerist þrátt fyrir að tvær síðustu ríkisstjórnir Íslands hafi lofað stuðningi við innviðauppbyggingu í Helguvík eins og gert hefur verið á öðrum sambærilegum stöðum. Nærtækasta dæmið er Húsavík.
Í dag, þegar mest ríður á, stendur enn á efndunum. Fyrir ári var keyrt í gegnum þingið viðbótarframlag til Húsavíkur upp á 2 milljarða vegna vanáætlunar Vegagerðarinnar í gangagerð við hafnarframkvæmdirnar. Á næstu dögum verður lagt fram frumvarp um smíði á nýrri Vestmannaeyjaferju upp á 5 milljarða og verður það væntanlega keyrt í gegnum þingið á nokkrum dögum.

Ég velti fyrir mér loforðum okkar, sex þingmanna ríkisstjórnarflokkanna og tveggja ráðherra, sem höfum lofað íbúum Reykjanesbæjar að við mundum koma til hjálpar.
Mér finnst miður þegar ég heyri þingmenn tala um að verið sé að gera einhverjar víxlareddingar í Reykjanesbæ í þessu alvarlega máli. Mér finnst að við þurfum að biðja íbúa Reykjanesbæjar velvirðingar á fálæti og getuleysi okkar þingmannanna til að aðstoða þá.

Íbúarnir í Reykjanesbæ eiga allt annað skilið en þetta af okkar hálfu.

Vonandi birtir yfir með nýjum tækifærum.