Nýjast á Local Suðurnes

Fulltrúar United Silicon funduðu með bæjarráði – “Staðan er mun skýrari heldur en áður”

Verksmiðja Stakksbergs í Helguvík

Fulltrúar United Silicon mættu á fund bæjarráðs Reykjanesbæjar í vikunni, en framkvæmdastjóri umhverfissviðs og sviðsstjóri á fjármálasviði sveitarfélagsins voru einnig boðaðir á fundinn undir þessum lið. Á fundinum gerðu fulltrúar fyrirtækisins fulltrúum Reykjanesbæjar grein fyrir stöðu fyrirtækisins.

Karen Kjartansdóttir, upplýsingafulltrúi fyrirtækisins, sagði fundinn hafa verið gagnlegan, en fundarmenn voru sammála um það að ástandið hafi hingað til verið óviðunandi gagnvart íbúum svæðisins.

“Þetta var almenn yfirferð um stöðuna. Búið er að vinna fjölda greininga á verksmiðjunni, tæknilegar og rekstrarlegar þannig staðan er mun skýrari heldur en áður um hvað þarf að gera.

Allir, bæði bæjarfulltrúar og fulltrúar félagsins, voru skýrir á því að ástandið hefði verið óviðunandi gagnvart íbúum svæðisins. Rætt var um kostnað við að gera verksmiðjuna eins og best verður á kosið út frá tillögum norska ráðgjafafyrirtækisins MultiConsult.” Sagði Karen.