Meðlimum vélhjólagengis vísað úr landi
![motorhjol](https://i2.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2016/10/buffalo-soldier-bikers-244426_1280.jpg?resize=620%2C264)
Fjórum meðlimum vélhjólagengisins Bad Breed MC í Svíþjóð var frávísað við komuna til landsins síðastliðinn föstudag.
Lögreglan á Suðurnesjum færði fjórmenningana á lögreglustöð meðan skoðun á landamærum fór fram. Að því loknu var þeim birtur úrskurður Útlendingastofnunar um frávísun. Þeim var fylgt um borð í flug til Stokkhólms.