Nýjast á Local Suðurnes

Meirihluti vill leyfa ber brjóst í laugunum

Töluverð umræða hefur skapast á samfélagsmiðlunum undanfarna daga um hvort leyfa skuli kvenfólki að stunda sundlaugar landsins án þess að hylja brjóst sín. Forsaga málsins er sú að Nútíminn greindi frá því að nokkrum stúlkum hafi verið vísað upp úr Sundlaug Akraness, þegar þær mættu berbrjósta í laugina. Í kjölfarið á þeirri umfjöllun birti Suðurnes.net  síðan frétt um að kvenfólki væri leyfilegt að mæta berbrjósta í sundlaugar Reykjanesbæjar.

Lesendum stendur til boða að taka þátt í könnun um málið á vef Suðurnes.net og þegar rétt tæplega 350 manns hafa greitt atkvæði sýna niðurstöðurnar að 65% þátttakenda er hlyntur því að kvenfólk fái að stunda laugarnar berbrjósta og 35% á móti. Enn er hægt að taka þátt í könnuninni hér.