Nýjast á Local Suðurnes

Mögulegt að röskun verði á flugi

Vegna veðurs getur orðið röskun á flugi til og frá Keflavíkurflugvelli í dag (föstudaginn 1. september) og á morgun (laugardaginn 2. september).

Farþegar eru hvattir til að fylgjast með upplýsingum um ástand vega á vef Vegagerðarinnar, veðurspá á vef Veðurstofunnar og flugtíma á vef Isavia og hjá viðkomandi flugfélögum, segir í tilkynningu.