Nýjast á Local Suðurnes

Hluti Smáratúns lokaður fram í október – Biðjast afsökunar á töfum

Vinnu við þriðja áfanga á endurnýjun lagna við Smáratún hófst á dögunum, en nokkrar tafir hafa orðið á framkvæmdum við götuna. Þeim hluta götunnar sem framkvæmdirnar standa yfir við verður því lokað fram í miðjan október.

Í tilkynningu frá Reykjanesbæ er beðist er velvirðingar á seinkun framkvæmdarinnar og þeim óþægindum sem kunna að verða en vonast er eftir góðum samskiptum við íbúa á meðan verkinu stendur.

Þeim hluta götunnar sem hefur verið lokað er merktur með grænum lit á myndinni hér fyrir neðan.