Nýjast á Local Suðurnes

Krýsuvíkurvegi lokað vegna umferðaróhapps

Krýsuvíkurveg hefur verið lokað við Suðurstrandarveg vegna umferðaróhapps sem varð á veginum. Engin slys urðu á fólki.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. Þar segir að unnið sé að því að opna veginn en til þess þarf stórtækar vinnuvélar og mun sú vinna taka um eina og hálfa klukkustund.

Ökumenn eru því beðnir um að virða þessa lokun og gefa viðbragðsaðilum rými til starfa á vettvangi.