Nýjast á Local Suðurnes

Kallaðir út en þurftu ekki að taka á honum stóra sínum

Fyrr í kvöld var Björgunarsveitin Sigurvon kölluð til aðstoðar björgunarsveitum í Reykjanesbæ vegna fjölda óveðursverkefna í sveitarfélaginu.

Hópur frá Sigurvon lagði af stað en ekki kom til þess að leysa þyrfti verkefni því veðrið var farið að skána um sama leyti, segir á Facebook-síðu Sigurvonar. Meðfylgjandi myndir fylgdu tilkynningunni.