Nýjast á Local Suðurnes

Grindavík í aðalhlutverki í nýju myndbandi frá Sigurrós

Sænski Emmy verðlaunahafinn Jonas Ákerlund stýrði tökum á nýjasta myndbandi hljómsveitarinnar Sigurrós, upptökur fóru að hluta til fram í Grindavík. Ákerlund þessi hefur unnið með stjörnum á borð við Madonnu, Beyoncé, Metallica og Lady Gaga svo eitthvað sé nefnt. Grindavik.net greinir frá þessu en þar kemur meðal annars fram að tökur hafi að að mestu farið fram á Kantinum og í gamla bænum.

Þá kemur einnig fram í umfjöllun vefmiðilsins að Teresa Bangsa fékk það verkefni að finna fólk sem myndi vilja taka þátt en hún sendi inn myndir af fólki sem hún þekkti og væri líklegt til að taka þátt en það voru vissar týpur sem leitast var eftir.

Eins og flestir vita er Sigurrós ein vinsælasta hljómsveit heims og ætti myndbandið að fá mikið áhorf og því að vera hin besta kynning fyrir Grindavíkurbæ.