Nýjast á Local Suðurnes

Reykjanesbær kaupir fasteignir á 3 milljarða

Bæjarstjórn Reykjanesbæjar hefur samþykkt að leysa til sín þær eignir sem hafa verið í eigu Fasteignar hf. og sem nýttar hafa verið undir starfsemi sem ekki flokkast undir lögbundna starfsemi sveitarfélaga.

Um er að ræða Hljómahöllina, Íþróttaakademíuna, 88-Húsið, Golfskálann, Dráttarbrautina í Grófinni og Þórustíg 3.

Umsamið kaupverð eru tæpir 3 milljarðar og lækkar leiguskuldbinding sveitarfélagsins sem því nemur.
Gera má ráð fyrir að skuldaviðmið Reykjanesbæjar lækki við þessi kaup um 10% hjá samstæðu og um 15% hjá sveitarsjóði.

Þá má einnig gera ráð fyrir að þessi aðgerð auki möguleika sveitarfélagsins til endurfjármögnunar á öðrum skuldum sem einnig gæti hjálpað til við að bæta rekstur sveitarfélagsins. Hér er því stórum áfanga náð sem ber að fagna, segir í bókun sem meirihluti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar lagði fram á fundi sínum í gær.