Nýjast á Local Suðurnes

Fyrirtæki loka snemma í dag – Bankar og tryggingafyrirtæki skella í lás klukkan 15.30

Leik­ur Íslands og Aust­ur­rík­is um sæti í 16 liða úrslitum Evrópukeppninnar í knattspyrnu hefst, eins og allir ættu að vita, klukk­an 16 í dag og virðast flest­ir ætla að vera til­bún­ir við skjá­inn á þeim tíma. Fjöl­mörg fyr­ir­tæki ætla að  gefa starfs­mönn­um færi á að fylgj­ast með ís­lenska landsliðinu spila þennan mikilvægasta leik í sögu landsliðsins og munu loka snemma í dag eða klukkan 15.30.

Útibúum Íslands­banka og Landsbanka verður lokað klukk­an 15:30 í dag og sömu sögu er að segja af trygg­inga­fé­lög­unum, VÍS, Sjóvá, TM og Vörður skella í lás og fleiri fyr­ir­tæki bæt­ast í hóp­inn með hverri mín­útu sem líður.