Nýjast á Local Suðurnes

ISS eldar fyrir starfsfólk Keflavíkurflugvallar

Isavia hefur gert samning við fyrirtækið ISS um rekstur mötuneytis fyrir starfsfólk á Keflavíkurflugvallar, en auglýst var eftir áhugasömum rekstraraðilum í október síðastliðnum. Nú hefur verið gengið til samninga við ISS um reksturinn og verið er að gera nauðsynlegar breytingar á mötuneytinu svo nýr aðili geti tekið til starfa. Meðal annars er verið að gera eldunaraðstöðuna þannig að hægt sé að fullelda matinn á staðnum en nýr rekstraraðili mun bjóða upp á mat úr fyrsta flokks hráefnum, eldaðan af kokki á staðnum. Nýtt mötuneyti mun opna 1. febrúar næstkomandi. ISS mun reka mötuneytið undir vörumerkinu MatAskur.

Ekki var þó um eiginlegt útboð á þjónustunni að ræða heldur þurftu áhugasamir aðilar að sýna fram á hæfni til að reka mötuneytið, en um er að ræða 6.000 manna vinnustað. Lögð var áhersla á að tilboðsgjafar hefðu reynslu af veitingarekstri sem nýtist við rekstur mötuneytisins á Keflavíkurflugvelli

ISS hefur mikla reynslu af rekstri mötuneyta, fyrirtækið framreiðir 7000 máltíðir á dag til fyrirtækja og stofnana. Meðal viðskiptavina eru Samtök atvinnulífsins, Umhverfisstofnun, Orkustofnun, Olíudreifing, Landhelgisgæsla Íslands, Landsvirkjun, Reykjavíkurborg og Hafnarfjarðarkaupstaður. Einnig sér ISS um rekstur á Rotissiere sem er nýr kjúklingastaður í Krónunni í Lindum.