Eldingu sló niður í flugvél Icelandair
Eldingu sló niður í flugvél Icelandair, rétt fyrir lendingu á Keflavíkurflugvelli nú síðdegis. Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi flugfélagsins, staðfestir þetta í samtali við mbl.is.
Segir Guðjón að um hafi verið að ræða Boeing-vél af gerðinni 767, á leið til landsins frá Kaupmannahöfn með 220 farþega.
„Nú er hún í skoðun til að líta eftir mögulegum skemmdum, eins og alltaf er gert.“