Tuttugu kvartanir vegna lyktamengunar um helgina
![united silicon reykur](https://i0.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2017/02/united-silicon-reykur.jpg?resize=620%2C264)
Tuttugu ábendingar um lyktamengun frá kísilverksmiðju United Silicon í Helguvík bárust Umhverfisstofnun um helgina.
Upp kom bilun í töppunarbúnaði á laugardagskvöld svo að kæla þurfti ofn verksmiðjunnar. Því var slökkt á honum í nokkra klukkutíma.
„Ofninn er kominn í gang en er ekki á fullu álagi. Við vonumst til þess að þetta sé yfirstaðið. Það var bras í gær en ofninn er í gangi,“ segir Kristleifur Andrésson, öryggis- og umhverfisstjóri fyrirtækisins við RÚV.
Kristleifur segir uppkeyslu á ofninum síðan 21. maí hafa gengið vel. „Það hefur ekkert komið okkur á óvart þannig að þetta hefur allt gengið samkvæmt planinu sem sett var upp. Það getur alltaf gerast að upp komi bilanir og hnökrar.“