Nýjast á Local Suðurnes

Skelfur sem aldrei fyrr og hættustigi lýst yfir

Hættu­stigi hef­ur verið lýst yfir vegna ákafr­ar jarðskjálfta­hrinu við Sund­hnúkagíga, norðan Grinda­vík­ur. Stærsti skjálftinn mældist 5,8, en sá er óyfirfarinn samkvæmt vef veðurstofunnar.

Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá rík­is­lög­reglu­stjóra, sem kveðst hafa lýst þessu yfir í sam­ráði við lög­reglu­stjór­ann á Suður­nesj­um.