Nýjast á Local Suðurnes

Útilokað að ráðast í viðgerðir

Svo virðist sem hitaveitulögn hafi farið í sundur undir miðju hrauni, á þeim kafla þar sem það er þykkast, og því útilokað að ráðast í viðgerðir, samkvæmt tilkynningu frá HS Orku. Íbúum er bent á að fylga leiðbeiningum Almannavarna í framhaldi.

Tilkynningin í heild:

Hjáveitulögn meðfram Njarðvíkuræðinni fór í sundur undir miðju hrauni um kl. 22:30 í kvöld og ber hún því ekki heitt vatn lengur til Reykjanesbæjar. Væntanlega laskaðist lögnin við hraunrennslið í gærmorgun og seint í kvöld, þegar aukið var við vatnsdælingu, virðist hún hafa brostið endanlega. Staðsetningin er undir miðju hrauni, á þeim kafla þar sem það er þykkast, og því útilokað að ráðast í viðgerðir þar.

Þegar er hafinn undirbúningur að lagningu nýrrar lagnar í nánu samstarfi við almannavarnir en ljóst er að sú framkvæmd mun taka einhverja daga. Ekki er hægt að áætla nákvæmari tímasetningar á þessari stundu.

Brýnt er að fylgja leiðbeiningu almannavarna og HS Veitna varðandi viðbrögð í þessum erfiðu og krefjandi aðstæðum.