Nýjast á Local Suðurnes

Bjóða Grindvíkingum að horfa á landsleikinn

Björgunarsveitin Þorbjörn býður Grindvíkingum að mæta í björgunarsveitsrhúsið að horfa á landsleik Íslands og Suður Kóreu, sem er í gangi þessa stundina. Þá er íbúum boðið upp á kaffi og simahleðslu.

Tilkynningu sveitarinnar, sem birt var á Facebook, má sjá hér fyrir neðan:

Kæru íbúar Grindavíkur!
Rétt í þessu hleyptum við varaafli á björgunarsveitarhúsið okkar þannig að hér höfum við ljós, heitt kaffi og landsleikinn á risaskjá
Okkur langar því að bjóða alla velkomna til okkar niður í hús á meðan á þetta ástand varir, hér er að minnsta kosti hægt að hlaða síma og fá sér kaffi.
Allir velkomnir