Nýjast á Local Suðurnes

Loka hluta Hafnargötu vegna framkvæmda

Til stendur að fara í lagfæringar á Hafnargötunni á kaflanum milli Tjarnargötu og Skólavegar. Nauðsynlegt er að loka þessum kafla fyrir bílaumferð á meðan á framkvæmdum stendur.

Mánudaginn 21. Júní verður farið í efri hluta götunnar (rautt) og svo seinnihlutann (blátt) þann 28. Júní. Báðir þessir kaflar verða svo fullbúnir og klárir fyrir umferð mánudaginn 12. Júlí. Hellur verða fjarlægðar og gatan malbikuð milli rennusteina.  Hellulagði kaflinn við Ránargötu heldur sér.

Viðeigandi merkingar og hjáleiðir verða settar upp. Beðist er velvirðingar á þeim truflunum sem þessar framkvæmdir kunna að valda.