Nýjast á Local Suðurnes

Semja við GG Bygg um færslu Þjóðbrautar

Ljósmynd: Reykjanesbær.is / OZZO

Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt að fela sviðsstjóra umhverfissviðs að ganga frá samningi við verktakafyrirtækið GG Bygg um framkvæmdir við færslu Þjóðbrautar. Fyrirtækið hefur undanfarin ár byggt upp Hlíðarhverfi og er svo komið að vegurinn stendur á fyrirhuguðu framkvæmdasvæði fyrirtækisins.

Þjóðbraut er flokkaður Þjóðvegur í þéttbýli og sem slíkur á ábyrgð og forræði Vegagerðar, en samkvæmt svörum frá Vegagerðinni til bæjarins er Þjóðbraut mögulega að detta útaf lista yfir þjóðvegi í þéttbýli.

Vegna tímapressu leggur sviðsstjóri umhverfissviða til að Reykjanesbær kosti þessa framkvæmd og eigi þá kröfu á Vegagerð þegar tryggt verður að Þjóðbraut verði áfram þjóðvegur í þéttbýli, m.a. vegna uppbyggingar við Njarðvíkurhöfn, segir í minnisblaði sviðsstjóra vegna málsins sem lagt var fyrir bæjarráð.

Samkvæmt minnisblaðinu er gengið til samninga við GG Bygg þar sem fyrirtækið hefur tæki til verksins klár til notkunar á staðnum. Samkvæmt upplýsingum frá umhverfissviði er áætlaður kostnaður vegna færslunnar á veginum um 26 milljónir króna og mun Reykjanesbær, eins og áður segir, mögulega eiga endurkröfu á Vegagerðina vegna framkvæmdanna.