Nýjast á Local Suðurnes

Stefna að uppbyggingu á landnámsdýragarðinum

Útlendingur ehf., rekstraraðili Víkingaheima, hefur óskað heimildar til að vinna tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir lóðina Víkingabraut 1.

Að megin inntaki er erindið um nýja sýningu innan núverandi byggingar, uppbyggingu á landnámsdýragarðinum sem stækki og verði opinn allt árið ásamt því að á lóðina komi nokkur gistihýsi og þjónustuhús.

Reykjanesbær hefur veitt samþykki fyrir vinnu við tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samráði við skipulagsfulltrúa.