Nýjast á Local Suðurnes

Fundu fíkniefni á víð og dreif um húsnæði fíkniefnasala

Myndin tengist ekki umræddu máli

Lögreglan á Suðurnesjum haldlagði nokkurt magn af fíkniefnum í húsleit sem gerð var í húsnæðinu í umdæminu í vikunni, að fenginni heimild.

Um var að ræða tugi gramma af meintu amfetamíni og kannabisefni. Fíkniefnin var að finna víðsvegar í húsnæðinu. Húsráðandi var handtekinn vegna málsins. Grunur leikur á að fíkniefnasala hafi átt sér stað á staðnum.