Nýjast á Local Suðurnes

Hófí með jólalag – Komið í spilun á Spotify

Lagið Það eru að koma jól með söngkonunni Hófi, sem búsett er í Njarðvíkum er Komið í spilun á tónlistarveitunni Spotify.

Á gítar og bassa spilar Alexander Grybos, trommurnar slær Magnús Már Newman og Rut Sigurðardóttir spilar svo listilega á sellóið. Um upptöku sá Ingi Þór.

Lagið samdi Hófí þegar sonurinn kom heim rétt fyrir jól og varð yfir sig hamingjusamur þegar hann sá allt jólaskrautið. Lagið fjallar um gleðina sem fylgir því að fá að njóta jólanna með börnunum sínum, það er einfaldlega best í heimi, segir söngkonan á Facebook.