Nýjast á Local Suðurnes

Lýsa yfir furðu sinni á launahækkunum

Starfsmannafélag Suðurnesja lýsir yfir furðu sinni á þessum launahækkunum hjá sviðsstjórum Reykjanesbæjar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu sem birt er á vef þess.

Í tilkynningunni segir jafnframt: Félagar okkar í STFS eru335 talsins sem eru í starfi hjá bæjarfélaginu og eru samningar ennþá lausir við þau. Samningar losnuðu 31. mars 2019. Með þessu framferði er bæjarfélagið að semja við sína yfirmenn um meiri hækkun en Lífskjarasamningurinn segir til um,  sem er 3,5% . Megum við þá eiga von á sambærilegri  hækkun til okkar félagsmanna frá bæjarfélaginu? Starfsmenn Reykjanesbæjar tóku á sig miklar launalækkanir á árunum eftir hrun og hafa sumir aldrei fengið til baka það sem dregið var af þeim. Við skorum á bæjarstjórn Reykjanesbæjar að endurskoða þessar hækkanir því með þeim er bærinn að segja að hann geti greitt hærri laun. Á þá ekki að hækka aðra starfsmenn Reykjanesbæjar?

Fyrir hönd Starfsmannafélags Suðurnesja

Stefán B. Ólafsson formaður