Nýjast á Local Suðurnes

Upplýsingafundur vegna jarðhræringa

Upplýsingafundur vegna jarðhræringa á Reykjanesi verður haldinn í Stapa Hljómahöll, miðvikudaginn 8. nóvember kl. 20:00.

Fundinum verður einnig streymt á Facebook síðu Reykjanesbæjar.

Fulltrúar frá Almannavarnardeild Ríkislögreglustjóra, Veðurstofunni, HS orku, HS Veitum munu vera með framsögu og gefst fundargestum tækifæri til að spyrja spurninga í lok fundar. Þeir sem horfa á streymið frá fundinum geta sett inn spurningar í athugasemdir við upptökuna.

Dagskrá;

  • Kristín Jónsdóttir, deildarstjóri og jarðskjálftafræðingur á Veðurstofunni
  • Kristinn Harðarson, framkvæmdastjóri framleiðslu hjá HS Orku
  • Páll Erland, forstjóri HS Veitna
  • Víðir Reynisson, sviðstjóri almannavarna hjá Ríkislögreglustjóra
  • Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra
  • Hulda Ragnheiður Árnadóttir, framkvæmdastjóri Náttúruhamfaratrygginga Íslands
  • Frummælendur sitja í pallborði ásamt Úlfari Lúðvíkssyni lögreglustjóra Suðurnesja, Otta Sigmarssyni formanni Landsbjargar og Ara Guðmundssyni verkfræðingi hjá Verkís og svara spurningum úr sal.
  • Magdalena Filimonow flytur útdrátt á pólsku.

Fundarstjóri, Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar