Nýjast á Local Suðurnes

Mögulegt greiðslufall hjá Reykjaneshöfn

Vegna dráttar á samningsbundnum greiðslum til Reykjaneshafnar hefur höfnin óskað eftir fjármögnun hjá Reykjanesbæ til að geta staðið skil af skuldbindingum sem eru á gjalddaga 15. október næstkomandi.

Í tilkynningu til Kauphallarinnar segir að vegna yfirstandandi vinnu við fjárhagslega endurskipulagningu Reykjanesbæjar sé óvíst hvort bærinn geti fjármagnað greiðslurnar. Því geti komið til greiðslufalls hjá Reykjaneshöfn.