Nýjast á Local Suðurnes

Nýjar reglur um styrki vegna íþróttaafreka

Bæjarráð Grindavíkur samþykkti á fundi sínum síðastliðinn þriðjudag nýjar reglur um styrki vegna íþróttaafreka. Reglurnar taka gildi um næstu áramót og leysa af hólmi reglugerð Íþrótta- og afrekssjóðs Grindavíkur frá 2009. Samkvæmt reglunum verða veittir styrkir í fjórum flokkum, það er landsliðsstyrki, afreksstyrki, fræðslustyrki og stuðningsstyrki.

Landsliðsstyrkir eru veittir til íþróttafólks sem valið hefur verið í landslið Íslands í sinni íþróttagrein. Styrkurinn er eingöngu veittur til æfinga- og keppnisferða erlendis. Landsliðsfólk á rétt á styrk ef það þarf sjálft að greiða hluta af flugfari eða gistingu og/eða ef það hefur orðið fyrir vinnutapi vegna landsliðsverkefna.

Afreksstyrkir eru veittir til félaga og/eða einstaklinga sem unnið hafa Íslands-, bikar-, deildar- eða fyrirtækjameistaratitil í meistaraflokki. Jafnframt eru veittir styrkir til félaga sem vinna sig upp um deild í meistaraflokki.

Fræðslustyrkir eru veittir til þjálfara, sjálfboðaliða og starfsfólk íþróttafélaga, sem starfað hafa með ungu íþróttafólki í Grindavík í að lágmarki 3 ár og stefna að því að gera það áfram, til þess að leita sér aukinnar þekkingar og/eða réttinda með námskeiðum eða annarskonar fræðslu. Styrkirnir eru veittir til einstaklinga eða hópa.

Loks eru veittir stuðningsstyrkir til keppenda, yngri en 18 ára, sem taka þátt í æfingaferðum, mótum eða landsliðsverkefnum erlendis og þurfa á einhvern hátt á aðstoð að halda, t.d. vegna fötlunar. Styrknum er ætlað að standa straum af kostnaði vegna þjálfara, fararstjóra eða fylgdarmanns.

Hver umsækjandi getur alla jafna hlotið styrk tvisvar sinnum á ári. Séu sérstakar ástæður fyrir hendi er frístunda- og menningarnefnd heimilt að úthluta styrkjum til sama styrkþega oftar og skal nefndin þá rökstyðja ákvörðun sína sérstaklega.

Reglurnar má lesa hér.