Nýjast á Local Suðurnes

Kynna breytingar á aðalskipulagi

Ljósmynd: Reykjanesbær.is / OZZO

Reykjanesbær kynnir vinnslutillögu Aðalskipulags Reykjanesbæjar 2020-2035 samkvæmt 30. Gr. skipulagslaga. Vinnslutillagan er aðgengileg á heimasíðu Reykjanesbæjar frá og með 2. september til 20. september 2021.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 27. September 2021. Skila skal inn skriflegum athugasemdum á skrifstofu Reykjanesbæjar á Tjarnargötu 12 Reykjanesbæ eða á netfangið skipulag@reykjanesbaer.is