Nýjast á Local Suðurnes

Rúmlega 1100 sóttu um tæplega 300 störf

Isavia auglýsti fyrir sumarið eftir sumarfólki í fjölbreytt störf, aðallega í flugvernd og farþegaþjónustu. Alls bárust 1.132 umsóknir og voru 286 ráðin í sumarstörf á Keflavíkurflugvelli hjá Isavia og voru um 40% þeirra konur og 60% karlar. Meðalaldur þeirra sem ráðin voru er tæplega 23 ár.

Sumarstarfsfólkið okkar hefur fjölbreyttan bakgrunn og menntun en meðal þeirra eru einstaklingar sem eru að læra sálfræði, verkfræði, jarðeðlisfræði, tölvunarfræði, hönnun, lögfræði og fleira, segir í tilkynningu.

Við hlökkum til að takast á við verkefni sumarsins með þessu frábæra fólki, sem mun leggja sig allt fram um að gera upplifun gesta flugvallarins sem ánægjulegasta.