Nýjast á Local Suðurnes

Stærri ELKO í komusal

Raftækjaverslunin ELKO hefur opnað nýja verslun í komusal Keflavíkurflugvallar með betra aðgengi og auknu vöruúrvali. Verslunin er staðsett í nýjum töskusal flugvallarins, við útganginn úr verslun Fríhafnarinnar.

Nýja verslunin verður stærri, sýnilegri, opnari og aðgengilegri fyrir viðskiptavini. Nýr töskusalur flugvallarins, þar sem verslunin er staðsett, er fyrsti áfanginn sem tekinn er í notkun í nýrri austurálmu flugstöðvarinnar og miðar að því að bæta aðstöðu fyrir farþega og upplifun þeirra, segir í tilkynningu á vef Isavia.