sudurnes.net
Stærri ELKO í komusal - Local Sudurnes
Raftækjaverslunin ELKO hefur opnað nýja verslun í komusal Keflavíkurflugvallar með betra aðgengi og auknu vöruúrvali. Verslunin er staðsett í nýjum töskusal flugvallarins, við útganginn úr verslun Fríhafnarinnar. Nýja verslunin verður stærri, sýnilegri, opnari og aðgengilegri fyrir viðskiptavini. Nýr töskusalur flugvallarins, þar sem verslunin er staðsett, er fyrsti áfanginn sem tekinn er í notkun í nýrri austurálmu flugstöðvarinnar og miðar að því að bæta aðstöðu fyrir farþega og upplifun þeirra, segir í tilkynningu á vef Isavia. Meira frá SuðurnesjumSuðurnesjastjörnutabloidblaðamaður sprengdi NútímannRæktin til sölu eins og hún leggur sigOpna öflugustu hraðhleðslustöð landsinsKormákur & Skjöldur og Epal í pop-upAllir komnir með nýjar tunnur og flokkun hefst af fullri alvöruEldri borgarar duglegir að nota hvatagreiðslurMottuhlaupið í fyrsta sinnLeita að rekstraraðila fyrir AðventusvelliðSetja upp umhverfisvæna innpökkunarstöðBjóða upp á ókeypis heilsufarsskoðun