Nýjast á Local Suðurnes

Grindavík aftengd frá Svartsengi

Orkuverið í Svartsengi verður aftengt frá flutningskerfinu á fimmtudaginn næstkomandi og Grindavík keyrð á varaaflsvélum á meðan.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsneti, sem sjá má í heild hér fyrir neðan:

Á fimmtudagsmorgun verða orkuverið í Svartsengi og Svartsengislína 1 tekin úr rekstri á meðan við hjá Landsneti reisum nýtt mastur við varnargarðinn sem verið er að reisa í kringum Svartsengi.

Á meðan mun Grindavíkurbær – Góður Bær fá rafmagn frá þremur varaaflsvélum sem nú er verið að flytja til Grindavíkur og verða tengdar inn á veitukerfið á með á verkinu stendur. Vélarnar verða staðsettar á hafnarsvæðinu og get annað 3,5 megavöttum sem eiga að geta séð Grindavík fyrir því rafmagni sem þörf er á þennan dag.

Við biðjum bæði fólk og fyrirtæki í Grindavík að takmarka orkunotkun þennan dag til að allt gangi að óskum. Að öðru leyti eigum við ekki von á að notendur verði fyrir rafmagnstruflunum vegna aðgerðarinnar.

Verkið hefst um kl. 08.00 og reiknum við með að það taki um 12 klukkutíma en verkið er unnið í góðu samstarfi við HS Orka og HS Veitur.

Ef til truflana kemur munu upplýsingar um þær birtast á www.landsnet.is , samfélagsmiðlum og í Landsnetsappinu.