Nýjast á Local Suðurnes

Suðurnesjastjörnutabloidblaðamaður sprengdi Nútímann

Suðurnesjamaðurinn Atli Már Gylfason er mættur í blaðamennsku á ný, eftir stutt hlé, en kappinn, sem hóf feril sinn með öflugum fréttum af erlendum stjörnum sem heimsóttu landið og skilgreinir sig í dag sem tabloid-blaðamann hefur tekið að sér að hripa niður fréttir á vef Nútímans.

Það er óhætt að segja að Atli Már fari vel af stað, fréttir flæða á vefinn og lesendur hrúgast það mikið inn að hýsingin réði enganveginn við álagið sem því fylgdi þannig að vefurinn liggur niðri í augnablikinu.

Ritstjóri Nútímans er fjölmiðlamaðurinn Frosti Logason og hafði vísir.is eftir honum að vefurinn yrði efldur til muna.