Bus4u með hópferðir að gosi
Myndin tengist fréttinni ekki beintHópferðafyrirtækið Bus4u mun hefja hópferðir frá Grindavík að göngustíg að gosstöðvunum við Fagradalsfjall á morgun. Ferðin frá Grindavík á Suðurstrandaveg mun kosta 1.000 krónur fyrir fullorðna.
Mikið umferðaröngþveiti skapaðist í grennd við fjallið í gær og á endanum þurfti að loka svæðinu vegna ágangs. Margir höfðu beðið klukkustundum saman eftir að komast að þegar þeim var vísað frá.




















