Ölvaður ók á móti umferð á Reykjanesbraut

Lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af allmörgum ökumönnum í vikunni sem höfðu gerst brotlegir með einum eða öðrum hætti. Einn þeirra, sem ók sviptur ökuréttindum, lét ekki segjast þegar lögregla gaf honum ítrekað merki um að stöðva bifreiðina á Sandgerðisvegi heldur ók til Sandgerðis þar sem hann var handtekinn.
Annar, sem ók á rangri akrein á Reykjanesbraut nærri Flugstöð Leifs Eiríkssonar, var handtekinn grunaður um ölvun. Þriðji ökumaðurinn sem handtekinn var, sviptur og grunaður um vímuefnaakstur, var ekki í neinu ástandi til skýrslutöku þegar á lögreglustöð var komið.
Þá voru nær tuttugu ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur. Þar af var einn, erlendur ferðamaður sem ók á 92 km hraða þar sem hámarkshraði er 50 km á klukkustund. Hann var jafnframt staðinn að því að aka hægra megin fram hjá öðrum ökutækjum á kafla þar sem slíkur framúrakstur er bannaður.