Nýjast á Local Suðurnes

Einn í einangrun á Suðurnesjum

Einn íbúi á Suðurnesjum sætir nú einangrun vegna Covid-19, samkvæmt vef Almannavarna og landlæknis, covid.is. Á vefnum kemur einnig fram að fólk er einungis í einangrun á Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu.

Enginn er þó í sóttkví á svæðinu samkvæmt sama vef, en rétt er að taka fram að vefurinn er ekki uppfærður um helgar.