Nýjast á Local Suðurnes

Vopnað rán í Innri – Njarðvík

Vopnað rán var framið í söluturni í Innri-Njarðvík á fjórða tímanum í dag. Fjölmennt lið lögreglu leitaði gerandans í hverfinu í kjölfarið.

Þetta kemur fram á vef VF.is, en þar segir að maður með hulið fyrir andlit og vopnaður hnífi hafi ógnað starfsfólki, opnað sjóðsvél í afgreiðslu og tekið þaðan peninga.

Lögreglan á Suðurnesjum staðfestir að hafa málið til rannsóknar mál en verst allra frétta.