Nýjast á Local Suðurnes

Ný lýsing í Leifsstöð getur líkt eftir norðurljósum – Kostaði 190 milljónir króna

Ný lýsing, sem býður upp á ýmsa skemmtilega möguleika, hefur verið sett upp í verslunarsvæði norðurbyggingar Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Lýsingin sem getur líkt eftir norðurljósum kostaði 190 milljónir króna samkvæmt fréttamiðlinum Stundinni sem greindi fyrst frá málinu.

Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúa Isavia, segir er í samtali við Stundina að lýsingin noti LED-tækni og bjóði upp á mikinn sveigjanleika í að breyta styrk, litum, hlýleika ljóss og fleira.

„Á venjulegum degi er þetta bara venjuleg hvít lýsing en á tyllidögum er til dæmis hægt að setja á norðurljósastillingu, íslenska fánann ef Íslendingar verða Evrópumeistarar í fótbolta, Gay Pride fánann á hinsegin dögum og svo framvegis,“ segir Guðni í frétt Stundarinnar.