Nýjast á Local Suðurnes

Yfirlýsing vegna kynþáttaníðs – Leikmaðurinn farinn úr landi

Leikmaður knattspyrnuliðs Reynis í Sandgerði sem dæmdur var í fimm leikja bann vegna kynþáttaníðs hans í leik KF og Reynis í 2. deildinni 10. september hefur haldið af landi brott. Knattspyrnudeild Reynis mun una úrskurðinum, en félaginu er gert að greiða 100 þúsund krónur í sekt vegna málsins.

Knattspyrnudeildin hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna málsins sem sjá má í heild sinni hér fyrir neðan:

Á fundi aga- og úrskurðarnefndar KSÍ fyrr í þessari viku var leikmaður Reynis dæmdur í fimm leikja keppnisbann vegna óásættanlegrar hegðunar í leik liðsins við KF í 2. deild karla þann 10. september s.l. og jafnframt var félagið dæmt til fjársektar. Knattspyrnufélagið Reynir unir þessum úrskurði sem er sanngjarn og í samræmi við óásættanlega hegðun leikmannsins. Um leið og stjórn knattspyrnudeildar Reynis var kunnugt um málið var umræddur leikmaður sendur í leyfi frá æfingum hjá félaginu og hefur hann nú haldið aftur á sínar heimaslóðir í Króatíu.

Knattspyrnufélagið Reynir í Sandgerði er fulltrúi byggðar þar sem uppruni og bakgrunnur fólks er fjölbreyttur og sá margbreytileiki álitinn styrkur fyrir samfélagið. Þessi fjölbreytileiki endurspeglast í meistaraflokksliði Reynis sem og í iðkendum yngri flokka félagsins. Knattspyrnufélagið Reynir getur því aldrei sætt sig við að leikmenn eða aðrir fulltrúar félagsins láti frá sér ummælli eða sýni af sér hegðum sem byggir á fordómum og mannfyrirlitningu.

Stjórn knattspyrnudeildar Reynis harmar að þetta mál hafi komið upp og biður hlutaðeigandi einstaklinga afsökunar.