Nýjast á Local Suðurnes

Stórglæsilegir jólatónleikar í Hljómahöll

Þann 15. desember verða stórglæsilegir jólatónleikar í Hljómahöll. Tónlistarmennirnir sem fram koma eru ekki af verri endanum því fimm af vinsælustu söngvurum landsins, hvort sem að litið sé til jólatónlistar eða popptónlistar yfir höfuð, ætla að mæta og syngja inn jólin.

Þetta árið eru það engar smá kanónur sem ætla að troða upp í Stapanum, segir í tilkynningu frá Hljómahöll, en Björgvin Halldórsson, Pálmi Gunnarsson, Helga Möller, Laddi og María Ólafs. munu stíga á svið, ásamt einu þéttasta tónleikabandi landsins sem skipað er fimm af hæfileikaríkustu hljóðfæraleikurum Íslands.

Forsala miða er hafin og fer fram á www.tix.is.