Varað við mjög slæmu veðri – Gæti orðið þungfært á vegum

Veðurstofa Íslands varar við mjög slæmu veðri um landið sunnanvert seint í kvöld. Vindur gæti orðið rúmlega 20 metrar á sekúndu og gæti skyggni orðið mjög takmarkað með þeim afleiðingum að þungfært verði á vegum.
Verst verður veðrið á Suðurlandi, á höfuðborgarsvæðinu og á Reykjanesi – Þá kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni að hálka eða snjóþekja sé víða á vegum á Suðurlandi og að þungfært sé á nokkrum vegum í uppsveitum og útvegum. Hálka og snjókoma er á Reykjanesbraut og á Suðurnesjum.