Nýjast á Local Suðurnes

Elías Már tók þátt í æfingaleik gegn stjörnuprýddu liði Real Madrid

Keflvíkingurinn Elías Már Ómarsson, var í byrjunarliði Valerenga í gær þegar liðið gerði markalaust jafntefli við stjörnum prýtt lið Real Madrid á Ullevaal leikvangnum í Osló.

Sterkt byrjunarlið Real Madrid var meðal annars skipað Gareth Bale, James Rodriguez og Luka Modric auk norska undrabarnsins Martin Ödegaard.

Elías Má var skipt af velli í hálfleik ásamt mörgum öðrum leikmönnum.

elias mar omarsson

Elías Már í leiknum gegn Real Madrid