Lögregla hvetur göngufólk til að gæta varúðar í fjalllendi

Vegna grjóthruns í kjölfar öflugra jarðskjálfa á Reykjanesi undanfarna daga, hvetur lögreglan á Suðurnesjum göngufólk til að gæta varúðar í fjalllendi á Reykjanesi. Ekki er þó einungis hætta á ferðinni í fjalllendi á svæðinu, heldur einnig við strendur skagans sem sjávarbjörg og hamrar eru.
Vart hefur orðið við mikið grjóthrun af völdum skjálftanna úr sjávarhömrum vestan við Festarfjall í grennd við Grindavík. Gera má ráð fyrir slíku hruni víðar, svo sem við Krýsuvíkurbjarg og Valahnjúk við Reykjanesvita.
Á meðfylgjandi mynd, sem barst Veðurstofunni, má sjá hvernig hrunið hefur úr sjávarhömrum vestan við Festarfjall.