Nýjast á Local Suðurnes

Gul viðvörun vegna veðurs

Gul viðvör­un vegna veðurs tek­ur gildi á Suður­landi og Faxa­flóa á morg­un klukk­an níu um morg­un­inn, að öllu óbreyttu. Verður hún í gildi til klukk­an fjög­ur sama dag.

Á vef Veður­stof­unn­ar seg­ir að bú­ast megi við suðaust­an átt 13-18 metr­um á sek­úndu. Hvass­ast verður við strönd­ina, við fjöll og á Reykja­nesskaga.

Ekk­ert ferðaveður verður á gossvæðinu á meðan viðvör­un­in verður í gildi og líklegt þykir að lögregla loki fyrir aðgang að svæðinu.