Nýjast á Local Suðurnes

Allt seldist upp og tæki biluðu á opnunarhelginni

Hamborgarastaðurinn Smass opnaði á Fitjum í Njarðvík um síðustu helgi og er óhætt að segja að staðurinn hafi fengið góðar móttökur hjá Suðurnesjafólki, en allt sem í boði var seldist upp.

Þetta kemur fram á Facebooksíðu fyrirtækisins þar sem viðskiptavinum er þakkað kærlega fyrir viðtökurnar og bent á að á næstunni verði opnað fyrir pantanir á vef staðarins.

Kærar þakkir fyrir frábærar viðtökur og þolinmæði yfir opnunarhelgina, segir á Facebooksíðunni.

Þetta gekk ekki hnökralaust fyrir sig, einstaka tæki brugðust okkur og birgðir seldust upp enda fór aðsókn fram úr björtustu vonum.

Nú erum við komin með allar græjur á fullt og allar vörur komnar í hús. Við keyrum því vikuna af stað á fullum krafti.

Frá og með á morgundeginum getið þið svo pantað á netinu og sótt á staðinn okkar í Fitjum.

Við erum ákaflega þakklát og hlökkum til komandi tíma, segir jafnframt.