Nýjast á Local Suðurnes

Tuttuguþúsundasti íbúinn fæddur – 33% fjölgun á sex árum

Þann 4. ágúst síðastliðinn fæddist lítill drengur á Landspítalanum og var hann tuttuguþúsundasti íbúi Reykjanesbæjar. Hann er fyrsta barn foreldra sinna, þeirra Sigríðar Guðbrandsdóttur og Sigurbergs Bjarnasonar.

Kjartan Már bæjarstóri heimsótti litlu fjölskylduna á dögunum í tilefni þessara tímamóta og færði þeim lítið „Kríli“ eftir listakonuna Línu Rut. Litli drengurinn dafnar vel að sögn foreldrana sem eru spennt fyrir nýju hlutverki.

Í dag tæpum mánuði síðar er íbúafjöldi sveitarfélagsins kominn í 20.116. Það er því ljóst að íbúum Reykjanesbæjar heldur áfram að fjölga jafnt og þétt. Til gamans má geta að þá fæddist fimmtánþúsundasti íbúinn í lok júlí árið 2015 sem gerir 33% fjölgun á síðastliðnum 6 árum.