Nýjast á Local Suðurnes

Njarðvíkingar fagna 10 ára afmæli Ungmarks – Landsliðsmenn litu í heimsókn

Félagar í Knattspyrnudeild Njarðvíkur komu saman í Vallarhúsi félagsins í gærkvöldi og fögnuðu 10 ára starfsafmæli Ungmarks sem stofnað var 4. mars 2006. Ungmark er minningarsjóður sem var stofnaður til minningar um Mile knattspyrnuþjálfara sem þjálfaði yngri flokka ásamt meistaraflokki hjá Njarðvík á árunum 1981-1990. Einkunarorð félagsins er “frá æsku til farsældar.”

Ungmark ingvar arnor brynjar

Þrír landsliðsmenn Njarðvíkur, Ingvar Jónsson, Arnór Ingvi og Brynjar Atli

Stofnfélagar voru leikmennn sem léku undir stjórn Mile og tilgangurinn var að mynda sjóð sem gæti stutt við hin ýmsu málefni grasrótarinnar hjá Knattspyrnudeild UMFN. Tekjur sjóðsins hafa orðið til að mestu sem framlag frá félagsmönnum ásamt styrkjum frá fyrirtækjum og stofnum. Þá hafa menn gefið afrakstur að fjáröflunarverkefnum ásamt þvi að hluti af tekjum knattspyrnudeildarinnar af getraunum renna í sjóðinn. Frá stofnum Ungmark hefur félagið styrkt ýmis verkefni s.s kynningarfundi, ferðir yngri knattspyrnumanna og þjálfara erlendis til æfinga eða til að kynna sér starfsemi félaga.

Á samkomunni í gærkvöldi voru afhjúpaðar tvær myndir af landsliðsmönnunum Arnóri Ingva Traustasyni og Ingvari Jónssyni sem báðir eiga uppruna sinn hjá Njarðvík og voru þeir félagar báðir viðstaddir.

“Tilgangurinn með myndunum er að vekja athygli yngri leikmanna hjá okkur að með aga og dugnaði er hægt að ná langt í knattspyrnu eins og þeir félagar hafa upplifað. Þá ávarpaði Freyr Sverrisson gesti en hann þjálfaði þá báða þegar hann starfaði hjá okkur. Einnig talaði Gunnar Þórarinsson formaður Ungmark , Sævar Júlíusson og Bjarni Sæmundsson formaður barna og unglingaráðs.” Segir í tilkynningu frá Njarðvíkingum.

Meðfylgjandi myndir eru af heimasíðu UMFN og teknar af Oddgeiri Karlssyni.