Reykjanesbær auglýsir eftir mannauðsstjóra

Reykjanesbær auglýstir starf mannauðsstjóra laust til umsóknar. Óskað er eftir kraftmiklum og metnaðarfulltum einstaklingi í starfið. Umsóknarfrestur er til og með 31. maí nk.
Það er Hagvangur sem sér um ráðningu mannauðsstjóra fyrir Reykjanesbæ. Mannauðsstjóri leiðir daglegan rekstur, uppbyggingu og þróun mannauðsmála í samstarfi við sviðsstjóra, deildastjóra og forstöðumenn stofnanna. Um er að ræða spennandi starf á miklum uppbyggingartímum. Starfið tilheyrir stjórnsýslusviði Reykjanesbæjar.
Helstu verkþættir:
- Ábyrgð á þróun og eftirfylgni starfsmannastefnu Reykjanesbæjar
- Ábyrgð á helstu mannauðsferlum – þróun þeirra, innleiðingu, þjálfun og umbótum
- Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur varðandi ráðningar, þjálfun, fræðslu og þróun starfsmanna
- Aðkoma að launasetningu og málum er tengjast starfsmati.
- Þátttaka í stefnumótun fyrir sveitarfélagið í heild
Menntunar og hæfniskröfur:
- Háskólapróf á sviði mannauðsmála, vinnusálfræði eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi
- Yfirgripsmikil reynsla af mannauðsmálum
- Þekking og/eða reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu
- Reynsla og hæfni til að innleiða breytingar og stjórna þeim
- Framúrskarandi samskiptahæfni
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
- Sjálfstæði, góð skipulagshæfni og færni til að vinna í hóp
Umsóknum skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Þórir Þorvarðarson thorir@hagvangur.is
Með því að smella á þennan tengil opnast starfsauglýsingin á vef Hagvangs í nýjum glugga.