Nýjast á Local Suðurnes

Landshlutasamtök sveitarfélaga skora á ráðherra og alþingismenn

Landshlutasamtök sveitarfélaga á öllu landinu skora á ráðherra og alþingismenn að tryggja að við gerð fjárlaga fyrir árið 2016 verði aukin framlög til fjölda málaflokka sem allir eru gríðarlega mikilvægir fyrir byggðaþróun til framtíðar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum.

Á meðal málaflokka eru þjónusta við fatlað fólk, samningar um sóknaráætlun, samgöngumál (nýframkvæmdir, viðhald og þjónusta), almenningssamgöngur  og ljósleiðaravæðing.

Landshlutasamtökin eru sem fyrr reiðubúin til að leggjast á árar með sínum kjörnu fulltrúum og ríkisvaldinu við að jafna tækifæri allra landsmanna til atvinnu og þjónustu, jafna lífskjör og stuðla að sjálfbærri þróun byggðarlaga um land allt. Það verður þó ekki gert nema vilji til þess sjáist í fjárlagafrumvarpinu gagnvart þessum lykilmálum, segir í tilkynningu frá Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum.