Nýjast á Local Suðurnes

Grunaður um eignaspjöll á sjö bílum en man ekkert

Unnin voru eignaspjöll á sjö bifreiðum í Keflavík sunnudagsmorguninn síðastliðinn. Hliðarspeglar höfðu verið brotnir og bifreiðirnar dældaðar.

Lögreglan á Suðurnesjum handtók mann sem grunaður er um verknaðinn. Hann bar við minnisleysi sökum ölvunar við skýrslutöku.