sudurnes.net
Landshlutasamtök sveitarfélaga skora á ráðherra og alþingismenn - Local Sudurnes
Landshlutasamtök sveitarfélaga á öllu landinu skora á ráðherra og alþingismenn að tryggja að við gerð fjárlaga fyrir árið 2016 verði aukin framlög til fjölda málaflokka sem allir eru gríðarlega mikilvægir fyrir byggðaþróun til framtíðar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum. Á meðal málaflokka eru þjónusta við fatlað fólk, samningar um sóknaráætlun, samgöngumál (nýframkvæmdir, viðhald og þjónusta), almenningssamgöngur og ljósleiðaravæðing. Landshlutasamtökin eru sem fyrr reiðubúin til að leggjast á árar með sínum kjörnu fulltrúum og ríkisvaldinu við að jafna tækifæri allra landsmanna til atvinnu og þjónustu, jafna lífskjör og stuðla að sjálfbærri þróun byggðarlaga um land allt. Það verður þó ekki gert nema vilji til þess sjáist í fjárlagafrumvarpinu gagnvart þessum lykilmálum, segir í tilkynningu frá Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum. Meira frá SuðurnesjumMikil fjölgun sjúkraflutninga á Suðurnesjum í takt við þróun á fjölgun ferðamannaBetri nýting og meira fé í hvatagreiðslurÓbreytt fasteignagjöld og útsvarsprósenta í ReykjanesbæUppbyggingarsjóður Suðurnesja úthlutar 45 milljónum króna til 35 verkefnaÁtak til atvinnusköpunar – Umsóknarfrestur til 21. janúarMikil fækkun gesta í Duus Safnhús eftir að innheimta aðgangseyris hófstGRAL fékk styrk frá mennta- og menningarmálaráðuneytinuAldrei meiri afgangur af reglubundnum rekstri hjá ReykjanesbæUppsögn bæjarstjóra kostar tæplega 14 milljónir krónaVísbendingar um kvikusöfnun